Monday 4 February 2008

Í fyrsta skipti

Á laugardagsnóttina fór ég í fyrsta skipti í leigubíl hér í Hollandi. Hitti nokkrar íslenskar skvísur um kvöldið í den Haag og að sjálfsögðu var talað svo mikið að við misstum af síðasta tram-inum. Þá var ákveðið að splæsa í leigubíl upp á lestarstöð. Bíllinn ilmaði líka svona skemmtilega af kebab.
Þegar komið var á lestarstöðina kom í ljós að ég hefði rétt misst af lestinni til Leiden og næsta kom eftir klukkutíma. Hefði ekki verið gaman að húka þar ein svona um miðja nótt en Delft dömur fórnuðu dýrmætum svefntíma og seinkuðu sinni brottför og biðu með mér. Ekki amalegt það:)

Í gær fórum við í fyrsta skipti til Amsterdam alein! Í þau þrjú skipti sem við höfum farið höfum við alltaf farið með gestum og vitað nærri því jafn lítið og gestirnir um áttir og staði. Við röltum aðeins um og reyndum að átta okkur betur á svæðinu til að vera betur undirbúin undir næstu innrás. Svo sá ég líka í fyrsta skipti gaura fara inn og koma út úr rauðu gluggunum. Hef bara séð gaura spyrja og svona en enga fara inn eða út. Rómantískt.

Í dag fórum við til Delft í fyrsta skipti að degi til og í fyrsta skipti í strætó í dag. Reyndar skoðuðum við bæinn ekki neitt heldur fórum í IKEA. Ætlaði bara að kaupa tvo kolla svo allir gestirnir gætu nú setið saman við matarborðið. Það bættist nú aðeins við innkaupin og við komum með meira en blessuðu kollana heim.

Fyrsti tíminn er á miðvikudaginn og þá fer allt að rúlla og afslöppunin víst að verða búin.

5 comments:

Anonymous said...

Fyrsta skipti.... það er alltaf svo spennandi :-)

drekinn said...

Já það var sumsé þess vegna sem þú sast svona uppsperrt í leigubílnum á laugardaginn! Svona líka spennt bara að vera í fyrsta sinn í leigara í hollandinu! Já alltaf fyrsta skiptið fyrir allt mín kæra! hihiiiiiii Fannst by the way minnsta málið að bíða með þér! Þú hefðir án efa gert það sama fyrir mig!

Anna Kristín said...

Á MORGUN Á MORGUN Á MORGUN Á MORGUN Á MORGUN Á MORGUN Á MORGUN... VÁ einbeitingin er ekki á réttum stað, verðum vonandi í tölvusambandi í kvöld til að ath. hvort við séum ekki örugglega með allt sem á að koma með ;)

VEIIIII

Anonymous said...

here i come to save the daaaayyyyy...ingapinga's on the waaayyyy....bomm bomm bomm

Anonymous said...

Nóg að gera greinilega :) Alltaf gaman að gera eitthvað í fyrsta skipti