Wednesday 5 March 2008

kindur.is

Þetta er með skemmtilegri hugmyndum sem ég hef séð lengi!
Á síðunni kindur.is er búið að leysa vanda allra sem hafa dreymt um að eiga kind en eiga ekkert fjárhús. Maður getur keypt eina kind en bóndinn heldur áfram að hýsa hana og fæða í sínu fjárhúsi. Svo er hægt að heimsækja kindina sína á ákveðnum heimsókanar dögum og njóta afurðanna, kjöt-ull-gæra (gegn aukagjaldi samt).
Svona næstum eins og eiga kind í alvörunni - man samt ekki eftir að neinn hafi fengið jólakort frá kindunum í minni sveit...

1 comment:

drekinn said...

hahahahahaaaa Allt er nú til! Svei mér þá! Pant fá eina svona í jólagjöf :-)